-
Krummi krunkar úti
Krummi krunkar úti,kallar á nafna sinn.Ég fann höfuð af hrúti,hrygg og gæruskinn.:,: Komdu nú og kroppaðu með mérKrummi nafni minn. :,: -
Krummi svaf í klettagjá
Krummi svaf í klettagjá,kaldri vetrarnóttu á,:,:verður margt að meini:,:fyrr en dagur fagur rannfreðið nefið dregur hann:,:undan stórum steini:,:."Allt er frosið úti gor,ekkert fæst við ströndu mor,:,:svengd er metti mína:,:ef að húsum heim ég fer,heimafrakkur bannar mér:,:seppi úr sorpi að tína:,:""Öll er þakin ísi jörð,ekki séð á holta börð:,:fleygir fuglar geta:,:en þó leiti út um móauða hvergi lítur tó;:,:hvað á hrafn að éta?:,:"Á sér krummi ýfið stél,einnig brýndi gogginn vel,:,:flaug úr fjalla gjótum:,:lítur yfir byggð og búá bæjum fyrr en vakna hjú;:,:veifar vængjum skjótum:,:Sálaður á síðu lásauður feitur garði hjá,:,:fyrrum frár á velli:,:"Krúnk, krúnk! nafnar, komið hér,krúnk, krúnk! því oss búin er:,:krás á köldu svelli:,: -
Krumminn á skjánum
Krumminn á skjánumkallar hann inn"gef mér bita af borði þínubóndi minn".Bóndi svarar býsna reiður"burtu farðu krummi leiðurlíst mér af þér lítill heiðurljótur ertu á tánumkrumminn á skjánum."