Sérstaða leikskólanáms er sú viðurkenning að börn læri í gegnum leik. Leikurinn er aðal náms- og þekkingarleið barna og er hornsteinn leikskólastarfsins. Börn tjá tilfinningar í leik og yfirfæra þekkingu sína og reynslu í leikinn sem þau hafa sjálf búið til. Leikumhverfið er skipulagt þannig að þar geti ríkt gleði, sköpun og vinátta. Í leik læra börn samskipti og samvinnu, að deila með hvert öðru og skiptast á. Þau öðlast skilning á jafnrétti og að virða ólíka einstaklinga en einnig sjálfstæði og lífsleikni. Barnahópurinn samanstendur af ólíkum einstaklingum af mörgum þjóðernum og með mismunandi bakgrunn. Hvert barn er einstakt.
Í Vinagerði er lögð áhersla á opinn efnivið til sköpunar það er því um uppgvötunar- og könnunarnám að ræða. Sem dæmi um efnivið má nefna margar tegundir af kubbum sem hvetja til rökhugsunar og stærðfræðiúrlausna. Frjálsir og skipulagðir leikir bjóða uppá ýmis viðfangsefni sem tengjast meðal annars málrækt, myndlist og hreyfingu. Leikur barna er jafnframt lífsleikninám sem er þroskandi glíma barna við daglegt líf og umhverfi þeirra og er grunnur fyrir formlegt nám grunnskóla.
Samstarf Vinagerðis
Samstarf við Breiðagerðisskóla
Samstarf við Grasagarðinn
Samstarf við Skógarbæ
Samstarf við Knattspyrnufélagið Víking
Foreldrasamstarf