Aðlögun er sá tími nefndur þegar nýtt barn byrjar í leikskóla. Aðlögunartíminn er mikilvægur fyrir börn og foreldra en ekki síður fyrir starfsmenn leikskólans sem eiga að annast barnið. Þegar barn byrjar í leikskóla hefur það í för með sér miklar breytingar fyrir það. Barnið er að kynnast nýjum aðstæðum og umhverfi, starfsmönnum og börnum, siðum og reglum. Þess vegna er mikilvægt að gefa því góðan tíma meðan það öðlast öryggi en góð samvinna foreldra og starfsmanna er megin forsenda þess að leikskóladvöl barnsins verði ánægjuleg.
Í Vinagerði er þátttökuaðlögun. Þegar barn byrjar í Vinagerði fá foreldrar afhenta aðlögunaráætlun fyrir barnið þar sem er gert ráð fyrir fimm daga aðlögun. Barnið kemur í stutta heimsókn í leikskólann fyrsta daginn og síðan lengist viðveran dag frá degi. Aðlögunaráætlunin er aðeins til viðmiðunar og skoðast hverju sinni út frá þörfum hvers barns. Foreldrum er boðið upp á viðtal við deildarstjóra þegar barnið hefur verið einn til tvo mánuði i leikskólanum. Fyrir utan dagleg samskipti við foreldra eru haldnir foreldrafundir, foreldraviðtöl, kaffiboð og fleira.
Starfsmenn leikskólans eru bundnir þagnarskyldu gagnvart öllu sem snertir hagi barnanna og fjölskyldna þeirra.